Ismynt á alþjóðlegri ráðstefnu um varnir gegn svikastarfsemi

ismynt.is

Núna í nóvember 2024 fór fram ráðstefna á vegum Globa Anti Scam Alliance í höfuðstöðvum Amazon í Washington DC. Þar var rætt um hvernig svikastarfsemi hefur vaxið undanfarin áratuginn og hvaða áhrif það hefur haft um heim allan. Pétur Sigurðsson stofnandi ismynt hefur verið viðriðin samtökin og tók þátt í pallborðsumræðu um hvað rafmyntaiðnaðurinn getur gert til að sporna betur við svikastarfsemi og hvaða áhrif svikastarfsemi hefur haft á iðnaðinn.

Svikastarfsemi um heim allan hefur færst í aukana og eru afleiðingarnar ekki einungis fjárhagslegt tjón þolenda, heldur er einnig um gríðarlegt tilfinningalegt tjón að ræða sem hefur í mörgum tilfellum leitt til sjálfsvígs. Fórnalömb svika eru á öllum aldri og hefur ungakynslóðin orðið sérstaklega illa úti síðustu árin. Til eru fjölmörg dæmi frá bandaríkjunum af unglingum 12-15 ára sem hafa lent í klóm kúgara á samfélagsmiðlum sem gengu undir fölsku flaggi og enduðu með sjálfsvígi. Þetta eru gríðarlega sorgleg mál og það sem verra er er að lang flest þessara mála eru aldrei tilkynnt.

Við hjá ismynt höfum orðið vör við gríðarlega aukningu á svikatilraunum hjá okkar viðskiptavinum og höfum komið á laggirnar áhrifaríkum ferlum og verklagi til að bera kennsl á slík tilfelli og meðhöndla þannig að sem minnstur skaði hlýst af. Á ráðstefnunni var deilt hugmyndum af slíkum kerfum og betrumbætum og gátum við aukið okkar þekkingu töluvert á málaflokknum en einnig lagt ýmislegt til málanna af reynslu okkar hér á landi.

Við erum stolt að fá að taka þátt í starfi G.A.S.A og af öllum þeim sem standa að samtökunum. Og að þessu tilefni viljum við minna á síðu okkar um varnir gegn svikastarfsemi þar sem ert að finna lýsingu á því hvernig þeir starfa og hvernig hægt er að forðast að vera fórnalamb svika. 


Bitcoin rífur 100.000 dollara múrinn

Í nótt fór verðið á einum BTC yfir 100.000 dollara markið. Beðið hefur verið eftir þessum þessum viðburði í langan tíma og getur hann ekki talist annað en stór sigur fyrir þá sem hafa trú á Bitcoin og afleiddri tækni.


Ismynt á alþjóðlegri ráðstefnu um varnir gegn svikastarfsemi

Fyrir skömmu fór fram ráðstefna á vegum Globa Anti Scam Alliance í höfuðstöðvum Amazon í Washington DC. Stofnandi ismynt hefur verið viðriðin samtökin og tók þátt í pallborðsumræðu um hvað rafmyntaiðnaðurinn getur gert til að sporna betur við svikastarfsemi og hvaða áhrif svikastarfsemi hefur haft á iðnaðinn.


Fyrsti Bitcoin-forsetinn?

Nú er ljóst að Trump hefur unnið forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og tóku allir markaðir vel í þær fréttir. Aðal kosningamálið sem brann á kjósendum þetta sinnið voru efnahagsmálin og hefur Trump látið stór orð falla um hvað hann hefur í vændum.


SUI á ismynt

Frá 5 milljarða dollara markaðsvirði, í samstarf með google, og nú í boði á ismynt. SUI hefur áorkað öllu þessu og meira til á síðustu vikum og ekki sér fyrir endann á framþróuninni.


Prófaðu appið okkar á IOS og Android

Þú getur sótt appið okkar á playstore (Android) og appstore (IOS), hvort sem er á spjald eða síma.


Dusty og ismynt í samstarf

Það er okkur heiður að styðja við bakið á Dusty gaming sem nýjasti styrktaraðili Dusty tímabilið 2024-2025. Dusty er íslenskt rafíþróttafélag sem var stofnað 2019 og hefur unnið til fjölda verðlauna og heldur uppi liðum í League of Legends, Overwatch, Rocket League og Counter-Strike.


Kaspa á ismynt

Kaspa á réttilega tilkall til nafnbótarinnar Bitcoin v2, það er því heiður fyrir okkur hjá ismynt að geta boðið KAS. Smellt hér til að lesa meira um þessa byltingarkenndu bálkakeðju.


Meme-tóken og rafmyntir

Nú nýverið hefur sprottið upp urmull af tókenum, sem mörg hver bera skemmtileg og spennandi nöfn, og eru oft markaðsett af áhrifavöldum og tik-tokurum sem spennandi fjárfesting.


Nýtt vinavildarkerfi ismynt

Bjóddu vinum þínum að skrá sig á ismynt. Þið fáið 500kr þóknun og þú færð allt að 20% af færslugjöldum þeirra.


Eru endurgreiðslur úr Mt Gox að skekja markaðina?

Eru endurgreiðslur úr Mt Gox að skekja markaðina? Eftirfarandi er umfjöllun um Mt. Gox og hvernig 10 ára mál skekur ennþá rafmyntamarkaðinn.


Chainlink í boði á ismynt

Það er okkur heiður að kynna Chainlink sem nýjustu rafmyntina á ismynt. Chainlink miðar að því að vera upplýsingagátt fyrir alla snjallsamninga svo að þeir geti byggt á tryggum og öruggum upplýsingum og keyrt uppfærslur á bálkakeðjunni út frá þeim.


Búðu til þitt eigið Bitcoin veski

Hérna finnur þú handhægar leiðbeiningar um hvernig þú býrð til þitt eigið Bitcoin veski og stundar eigið eignarhald (self custody).


Hvað er polkadot?

Ýtarleg umfjöllun um Polkadot rituð af stofnanda ismynt, kynntu þér málið.


Bitcoin hálfunin og hvaða þýðingu hefur hún fyrir rafmyntaheiminn?

Þessum viðburði er beðið með óþreyju af bálkakeðjunerðum um heim allan, enda er hann fyrirboði framboðsskorts sem að öllu jöfnu á sér stað vikurnar eftir.


Bandaríska fjármálaeftirlitið samþykkir Bitcoin ETF

Bitcoin kauphallarsjóðir (ETFs) hafa verið samþykktir af bandaríska fjármálaeftirlitinu SEC.


Opið fyrir skráningar fyrirtækjareikninga

Opnað hefur verið fyrir skráningar fyrirtækjareikninga.


Avalanche (AVAX) á ismynt.is

Avalanche er komið í hóp rafmynta sem eru í boði á ismynt.is. Alls eru þá BTC, ETH, DOT, KSM, SOL, XRP, MATIC og AVAX í boði á íslensku rafmyntakauphöllinni.


Polygon (MATIC) er komið á ismynt.is

Það er okkur heiður að tilkynna að við höfum bætt við Polygon (MATIC) rafmyntinni á ismynt.is.


Ismynt á alþjóðegri ráðstefnu um svikastarfsemi

Pétur Sigurðsson, stofnandi ismynt, tók þátt í pallborðsumræðu á ráðstefnu um gerð alþjóðlegrar gæðavottunar í rafmyntaheiminum.


Opnað fyrir Ripple (XRP) á ismynt

Opnað hefur verið fyrir kaup og sölu á rafmynt Ripple, XRP!


IsMynt + ChainAbuse.com

IsMynt ehf hefur hafið samstarf við ChainAbuse.com um aðgerðir gegn svikum í rafmyntaheiminum. 


Bálki Podcast

Pétur Sigurðsson, stofnandi ismynt, var gestur í podcast þáttum Bálka, þar sem rætt var um þróun og áskoranir rafmyntaheimsins.