8. Mars 2024
Hvernig færi ég eignir mínar af annarri kauphöll/kerfi yfir á ismynt.is?
ismynt.is
Eftirfarandi eru leiðbeiningar um hvernig þú færir þínar rafmyntir á ismynt.is af annarri kauphöll/kerfi/veski.1. Stofna reikning á ismynt.is
Fyrsta skrefið er að stofna reikning á ismynt.is. Ferlið útskýrir sig sjálft og þú þarft einfaldlega að fylgja leiðbeiningunum á forminu. Að því lokun getur þú haldið áfram að skrefi 2.
2. Búa til innlagnar addressu á ismynt.is.
Þegar þú hefur lokið nýskráningu skaltu innskrá þig á ismynt.is. Í vinstri valmyndinni skalt þú velja "Aðgerðir" -> "Innlögn". Á þessari síðu getur þú látið búa til addressu fyrir þig fyrir allar þær myntir sem eru í boði á ismynt. Veldu þá mynt sem þú vilt flytja á milli (td. BTC), og ný addressa verður sjálfkrafa búin til innan skamms.
3. Taka út af eldri kauphöll/kerfi/veski
Næst skaltu fara á þá kauphöll/kerfi/veski sem þú vilt taka út af. Þar skaltu velja að "Senda" eða "Taka út" rafmyntina þína. Þegar þú ert beðin(n) um að slá inn hvert á að senda rafmyntina skaltu gefa upp addressuna sem hefur verið búin til á ismynt. Passaðu að þú verður að senda sömu rafmynt og á sama netverki og tilgreint er á úttektarsíðunni á ismynt.
4. Staðfesta úttekt
Þegar þú hefur samþykkt úttektina verður hún framkvæmd, það getur tekið einhvern tíma eftir því hvaða rafmynt er verið að senda. En þegar hún berst ismynt færðu tilkynningu í tölvupósti og rafmyntin verður aðgengilega á ismynt.is.
Viljir þú strax selja rafmyntir þínar og taka út á bankareikning getur þú fundið leiðbeiningar um það hér.
Ef þú lendir í vandræðum með einhver af ofangreindum skrefum skaltu ekki hika við að senda okkur póst í help@ismynt.is.